
Carbfix hefur þróað byltingarkennda lausn sem breytir CO₂ í stein á innan við tveimur árum. Með því að steinrenna CO₂ er Carbfix í fremstu röð á heimsvísu þegar kemur að öruggri og varanlegri geymslu á CO₂ og mikilvægur hluti af þeim lausnum sem þörf er á til að takast á við loftslagsbreytingar.
























Markmið okkar er að hafa raunveruleg jákvæð áhrif á loftslag með öruggum og sönnuðum aðferðum við að breyta CO₂ í stein á heimsvísu.
29.3t
+
CO₂ dælt niður í dag*
100k
+
CO₂ dælt niður síðan 2014
4
+
Fjöldi verkefna

Fræðsluferð Carbfix fyrir framhaldsskólakennara fór fram á Hellisheiði í gær með góðri þátttöku kennara víðs vegar að af landinu. Á dagskránni voru loftslagsmál, kolefnisbinding, jarðfræði, sjálfbær orkunýting og íslenskt hugvit.

Í tilefni Alþjóðlega umhverfisdagsins þann 5. júní bjóða Carbfix og Jarðhitasýning ON almenningi í ókeypis leiðsögn á Hellisheiði undir yfirskriftinni Opið Borholuhús Carbfix.

Renew Europe, stjórnmálaflokkur af Evrópuþinginu, sá hvernig kolefnishlutleysi jarðavarmavikjunar ON var afrakstur af samvinnu Carbfix, ON og Nýsköpunarjsóðs ESB.
Carbfix tæknin byggir á meira en tíu ára reynslu. Á grundvelli hennar metum við hentugleika jarðlaga til varanlegrar geymslu CO₂ og drögum úr áhættu. Við sköpum verðmæti með því að framkvæma hagkvæmiathuganir, stýra tilraunaverkefnum og annast uppsetningu og rekstur niðurdælingarkerfa.
Í sumum tilvikum má beita Carbfix tækninni nálægt þeim stað þar sem CO₂ er fangað, ýmist frá iðnaði eða beinni kolefnisföngun úr andrúmslofti (e. Direct Air Capture, DAC), ef jarðlög og bergmyndanir á svæðinu henta til steindabindingar. Við bjóðum upp á ráðgjöf og sérsniðnar hagkvæmiathuganir fyrir hvert verkefni og samstarfsaðila.
Stórar móttökustöðvar, byggðar nálægt hentugum jarðlögum, spara kostnað sökum stærðarhagkvæmni. Eftir að CO₂ er fangað er það flutt til móttökustöðvarinnar og bundið þar í jörðu til frambúðar. Carbfix veitir ráðgjöf og vinnur hagkvæmiathuganir sem eru sérsniðnar að hverju verkefni.

Carbfix er með verkefni við föngunarstað, þar sem CO₂ og H₂S frá tveimur af jarðvarmavirkjunum Orku Náttúrunnar á Íslandi er dælt niður.

Coda Terminal, fyrsta móttöku- og steindabindingarstöð í heimi.

Carbfix byrjaði sem fræðilegt rannsóknarverkefni, og rannsóknir og þróun eru enn í dag mikilvægur hluti starfsemi okkar.
Heimsóknir, vísindalegar fyrirspurnir og almennar spurningar
Skoðaðu lausnirnar okkar og hvernig við getum unnið saman
Hafðu samband með fyrirspurnir tengdar fjölmiðlum
Hefur þú áhuga á að vinna hjá Carbfix? Skoðaðu störf í boði hér